Rigningin úti en rökkrið nær inn
reykurinn liðugur gælir við kinn
Regnið við rúðuna talar

Djarflegar ljóstýrur dansa um húm
draga upp skugga á veggi og rúm
Draumurinn daðrandi hjalar

Kisan er fljótlega komin til þín
karmað frá okkur hún tekur til sín
Kötturinn kúrir og mala