Taktu mig í faðm þinn bjarta sumarnótt
leifðu mér að gleyma dagsins önn og sárum
taktu mig með þér bara í nótt, þessu einu nótt
á vængjum þínum inn í dalanna ró.

Kenndu mér að njóta frelsis
kyssa laufblað á bjarkargrein
spegla augun í lygnri vík
og lykta reyrinn á engjateig

Já taktu mig með þér
og kenndu mér að elska
landið og rætur mínar,
leifðu mér að finna
unað og dásemd þína
blíða sumarnótt.