Ef þú kæmir til mín
myndi ég ráðast á þig
og rífa
utan af þér fötin
strjúka síða dökka
hárið þitt
leggja höfuðið
að brjósti þínu
og heyra hjartað slá
svo myndi ég stilla
þér upp
á stofuborðið
og kyssa á þér stórutærna