Það er sama hvað ég reyni
engin kona skilur mig
hvað þarf ég að gera
til að opna inn?
Ég er hættur að skilja lífið
reikningar og vonbrigði
er það eina sem búast má við
hvað þarf ég að gera
til að komast að?

Allt í kringum mig
eru stelpurnar að leita
eru ljósin mín slökkt?
Sjá þær ekki inn?
Ég hef svo margt að gefa
af sjálfum mér
en enginn vill mig þiggja
ég er að gefast upp

Það eina sem ég fæ
er eitt orð, það nei
ég er ekki ljótur
eða vondur maður
hvað er þá málið?
Eru ljósin slökkt?
Það vilja allir fá
svo fallega sál
til að ylja sér
mín er ein sú fegursta
og alltaf svo hlý

Kanski er ég geðveikur
kanski er ég sikk
en ég myndi vita það
ég væri látinn vita
þetta þýðir ekki lengur
ég ætla að kveðja ykkur öll
og þennan jarðneska heim
öllum verkum mínum ólokið
svo margt sem þarf að gera
en mig stendur orðið sama
ég gefst upp