Þegar söknuður
kaldur og grimmur
býr um sig
í angurmæddu brjósti
grætur hjartað
hljóðum tárum.

Ljóðið verður
spegill minn
blekið blóð mitt
orðin tár mín,
það ert þú
sem ég þrái.