VERTU BARA „ÞÚ“

Sumt fólk segir:
„Vertu bara þú.“
En hver ert „þú?“

Hver einasti einstaklingur
Er mótaður af umhverfi sínu
Á einhvern hátt
Til góðs eða ills

Og „þú“ týnist í tískublöðum
Og lélegum bröndurum
Úr enn verri bíómyndum

Og áður en „þú“ veist af
(Í raun muntu aldrei vita það)
Ertu runnin(n) saman
Við tískublöðin
Og lélegu brandarana

Og „þú“ ert ekki lengur til…