Stríðsyfirlýsing mín á hendur Álfa og Trölla.

Til allra sem hluta eiga að máli.

Ég bý í stóru húsi en ég þekki það vel, og frá barnsaldri hef ég
alltaf þurft að taka á mig sökina þegar hlutir týnast. En ég veit
vel að það var ekki ég. Frá unga aldri hef ég verið blóraböggull
fyrir ykkur, en ekki lengur.

Ég lýð ekki að þurfa að hylma yfir með ykkur, ég er ekkert
helvítis leikfang og ég skal sanna það fyrir ykkur. Ef þIð viljið
leika ykkur, til er ég, en núna skulum við spila eftir mínum
reglum.

Ég lýsi hérmeð yfir stríðI á hendur ykkur huldufólk. Komið
fram og takið þessu með stæl.

Ef að á hinn bóginn, þIð beytið að berjast…

…Þá lýsi ég bara yfir ótrú á tilvist ykkar…

Enginn hittir álfa né tröll ef enginn trúir á huldufólk.
Hvað er þetta Undirskrift pósta?