Í nótt þá dreymdi mig draum er ég steig í dans við þig,
Þann gillta dans er ástin ber með þig í faðmi mér,
Þú hélst mér þétt og ég fann þinn il er þú steigst dans við mig,
Já ilin mjúka er ég fann er ég dansaði með þér.

Ég fann fyrir því að þú hélst þétt um hendi mína,
Þú kisstir mig og brosið breitt lýsti upp andlit þitt,
Við dönsuðum þar saman tvö inn í drauma þína,
Og dansinn endar en ástin ekki það er loforð mitt.