Í óendanlegu djúpi
augna þinna,
finn ég sjálfa mig
ástleitna
heita sólstafi
líðandi stunda.

Seiðandi andartakið
fangar sál mína,
eins og veiðimaður
bráð sína.

Ég gef þér bros mitt
augun skína í átt til þín,
krefjandi svars
um örskamma stund.