Gestur 1.

Spegilmynd Morthens
syngur með sjálfum sér
og hjal í gítarstreng
sem kjúkurnar káfa á.

Gestur 2.

Gullinn foss rennur
á milli grænna hlíðanna
í miðið rauður bátur
sem veltist um í orðaflóði.
—–