Sindrað sólu er vatnið
skín á fjallatinda
streyma gamlir tímar
fram í huga mér
silungar í læknum
söngur lóms að kvöldi
fuglakvak í kjarri
og kyndug fluga á vegg
lékum við í túni
kétt í lund að vori
við lítinn kátan hvolp
tímar hafa liðið
talin nú hver stundin
er tifar æviveg
man ég þó í muna
sakleysi og unað
yndisfögur æskan
býr enn í huga mé