Greinagóð skil gáfu þau mér,
á mönnum einsog þér.
En ég kaus að loka augunum
fyrir þig.
Nú horfa þau á mig
rífa hjartað þitt í tvennt.
og hugsa með sér,
Til hvers?
Því þau vita,
að svo lengi sem ég lifi
mun ég alltaf fá
minni helminginn.