Situr bara og nagar
á þér neglurnar
yfir því að
ég vildi þig ekki,
hvað hélstu að ég
væri
skítug hóra sem
kæmi skokkandi
um leið og þú opnaðir
þig,
gæfir mér root,
bakaðir með mér,
kendir mér að grilla,
lofaðir að fæða mér börn

Nei ég læt ekki glepjast af veiku
geði þínu
Tek ekki þátt í sjúkum leikjum
þínum
Gef mig ekki á vald holdlegum fýsnum
mínum

Það er bara annað
sem ég geri í kvöld
og samneyti við þig
er ekki á matseðlinum
frekar vil ég
sitja og hugsa
um það hvernig ég
get haft stjórn á því
hvernig þér
líður.