Börn ástarinnar

lífið er svo endanlegt
þú deyrð
ég dey
en núna
þegar ég elska þig
þá brosi ég
því þú gafst mér heiminn

kannski varir ekkert að eilífu
en það er allt í lagi
því þú ert hérna
og núna má ég halda fast í þig
en ég sleppi þér
því ef þú elskar mig
þá kemurðu aftur til mín

ég ætla ekki að halda í þig
aðeins standa þér við hlið
ég á þig ekki
og þú átt mig ekki
eilífðin á okkur bæði
því við erum börn ástarinna