Að passa þig
er sem að halda á innihaldslausu tuskudýri;

Þú
ert ekki viðstaddur
við predikunina
við fyrirgefningarnar
við ástarorðin

ekkert frekar en þú ert viðstaddur
þegar ég sleppi þér
og þú brýtur öll loforð