Þögnin bankar uppá hjá okkur
eins og gamall fjölskyldumeðlimur
sem oft hefur verið til vandræða
Í stað þess að vísa henni burt
með lélegum afsökunum
eins og svo oft áður
bjóðum við henni inn til okkar

Þar sem við sitjum brosandi
með hana á milli okkar
fyllandi hjörtu okkar gleði
uppgötvum við loksins
hvað við höfum verið að fara á mis við