Ég skrifa orðin niður á blað en þau bara skortir merkingu/
Þessar setningar,eru marklausar,einsog væntingar.
Sem eru settar uppá mínar herðar/
Mér er sagt eg bara verð’að/
Standa undir þeim annars muni ég kremjast.
Og verða undirmálsmaður í samfélaginu/
Verða,aldrey að manni því ég fylgi mínu eigni lagi nú.
Hin heilaga melodía,samfélag tónanna/
Sem fara upp og niður tónstigann og láta sig óma.
Til að mér og þér getir liði aðeins betur/
Afraxtur míns vinnudags var að færa þessi orð í letur.
Reyndu að skilja mig,reyndu aðskilja mitt sjónarmið/
Ég vil fá meira útúr lífinu en bara það sem beint blasir við.
Einungis útaf því að ég kýs mitt líf með engu áhyggjum/
Er ég litinn hornauga,og settur í hóp með frávikum.
Stíll míns lífs þróaðist ekki á teikniborði hjá fræðingum/
Sem steypa alla í mót og planta einsog nýræktuðum græðlingum.
Ég neita að fara í svæfingu,held áfram minni rapp-æfingu/
Tala til nýrra kynslóða,geri þau öll að mínum lærlingum
Held áfram barráttunni fyrir betri heimi/
Þú veist þú getur ekki neitt nema bara að þú reynir
Lætur slag standa,og kastar þínum teningum/
Ef þú ætlar að leita að hamingjunni ekki vera að leita að peningum.
Leitaðu að listinni,ekki missa hana frá þér heldur kysst’ana/
Faðmaðu hana að þér,og láttu hana aldrey frá þér fara.

—-
Maður fer áfram framá veginn,en fer svo bara í hringi/
Þyngist endalaust róðurinn og gróðinn verður líklegast enginn
Strengi ný heit í hverri viku um að breyta mér til batnaðar/
Stunda námið af kappi og reyna að vera duglegri við það að vakna.
Upp á réttum tíma,mæta í skólann,vera virkur/
Kveikja lærdómsljós,þegar perurnar framleiða bara myrkur,
Taka þátt í mannlegum samskiftum;þessum yfirborðskennda sirkus/
Þegar allt sem maður vill gera er bara að sitja heima og yrkja.
Hugann styrkja með orðanotkun,svo maður verður sigurvegari/
Þegar maður sér að manns list,gerir heiminn aðeins fegurri.
Þessvegna skapa ég allan daginn,þannig verður mitt líf að vera/
Og meðan ég held mínu striki er mér skítsama um þá sem að efast.
Um að… mínar rímur séu ekki nógu flóknar/
Ég segji Fokk það! Ég er ekki hér öðrum til að þóknast.
Tákn og tónar innítölvunni er það sem lífi mínu er eytt í/
Fæ greitt fyrir með þeirri ánægju er ég geri feitt bít,og bæti við rími.

Bæti við rími.