Ég stóð út við lækinn
Og samdi þetta lag
Fjöllin sungu undir
Og hafið hlustaði á það
Þú varst ekki hjá mér
Ég var einmana
Þú heyrðir aldrei sönginn
Né heldur söguna

Ég beið þín alla ævi
En aldrei komstu til mín
Ég starði bara á fjöllin
Og sólin hvarf bak við ský
Ég hefði átt að fara
Fara og leita þín
En ég tíma mínum eyddi
Og nú er allt fyrir bí.
Fólk er fífl