Líkt og ljósmynd
í framköllunarvökva
birtist umhverfið
smátt og smátt
þegar morgunninn
sameinar nótt og dag
í löngum, hægum kossi