Þetta er fyrsta tilraun mín svo ekki búast við miklu =)


Lítill engill

Skínandi brosið
Glampinn í augum hennar
Hamingjan greinileg

Í henni var kviknað líf.

Lítill engill,
Eftirvænting, móðurást,
Yfirþyrmandi tilfinningar.

Hún strauk yfir kviðinn
Fann vængina breiðast út
Lítið hjarta sló með hennar.

En litla hjartað hætti að slá,
Vængjunum var ekki ætlað flug.

Augu hennar dofnuðu
Brosið hvarf í skuggann
Hjarta hennar blæddi
Og blæðir enn.

Elsku engill, sofðu rótt.