Það er kalt,
hún streitist á móti vindinum.
Hún er laufblað,
laufblað sem vindurinn feykir burt.
Hún streitist á móti,
en vindurinn er sterkari.
Hún feykist út um bæinn
og brotlendir á grjótharðri stéttinni.
Á morgun verður henni sópað saman,
sópað saman eins og hinum laufblöðunum.