Hversvegna segja varir þínar
að ég sé kyssileg?

Er það vegna þess
að þær hafa aldrei séð
bleikar tungur berjast
í baráttu um forsjá Orðsins.

Eða vegna þess að broddur hennar
er beiskur á daginn
en sykraður með svörtu kaffi
á síðkvöldum.

Svo er það þessvegna sem varir þínar
segja að ég sé kyssileg?

Að þær hafa aldrei bragðað
biturð og blíðu
í sama bitanum.
Í meinum var hún fegurst allra systra minna. Rebekka 2002.