Mér líður svo illa
ég er svo reið
ég skil ei hví ég græt
mamma reyndi að hugga mig
en ekkert gekk
mér líður enn illa
og græt í senn
mér finnst eins og ég muni deyja
ég vil ekki deyja
ég vil ekki vera ein
mamma afhverju ertu ekki hjá mér?

Hvað ef ég myndi deyja í dag
af sorg eða af reiði
og mamma þú værir ei hjá mér
þá myndir þú gráta mína reiði
mig langar að fá þig aftur mamma
hafa þig hjá mér um ókomna tíð
mig langar að hafa Jóhönnu
og leyfa henni að vera til staðar.

Ég get ekki sagt neinum frá þessu
frá því hvernig mér líður
því í raun erþað ekkert merkilegt
mér líður bara frekar illa
vinir skipta miklu máli
í lífi hvers og eins
og þess vegna er ég grátandi
ég sakna horfins vinar
hún þurfti ekki að fara
og vera svona vond
og fara án þess að kveðja
mig langaði bara að segja fyrirgefðu
en fékk ekki tækifæri til þess.

Nú er liðið rúmlega ár
og ennþá ég sakna hennar
hún var hinn fullkomni vinur
en skildi ekki þjáningar mínar
mig langar svo að hvísla henni
bara einu sinni enn
að mér þykji rosa vænt um hana
og ég sakni hennar í senn
en hún er farin langt í burt
og kemur aldrei aftur
þó ég reyni og reyni og reyni í senn
þá kemur hún aldrei aftur.