Mér líður eins og
vængbrotnum fugli
sem fljúga vill
frá kvalara sínum.
Þó höfuð mitt
hvíli á brjósti þínu
og sterkir armar
faðmi mig,
er eitthvað
í orðum þínum
sem vekur óhug
hjá mér.

Augun mín
fyllast tárum
þegar ég horfi
í augun þín.
Ég sé drauma mína
hverfa í svörtum
skuggum sem leynast
djúpt í þeim.
Ástarorð þín
af silkimjúkum
vörum eru sem
stálflísar reknar
í hjarta mitt og brjóst.
Ég veit eins og fuglinn
að þú verður ógæfa mín.