Allt lífið hef ég
leitað að öruggri höfn
eins og laskaður bátur
sem hrekkst um ólgandi höf,
í kvöld sem öll önnur kvöld
sofna ég á tárvotum kodda.