Taktu til hendinni
kláraðu úr bollanum
og byrjaðu á nýjum degi.
Hreinsaðu til í geymslunni
gamlar minningar ofan í kassa
og góðar upp á stásshillu.
Hringdu í móður þína
þú elskar hana
hún veit það
en orð
geta verið eins og konfekt
og mömmur elska súkkulaði.
—–