heimur vor er sá hinn sami
er brosir við dögg sólar
og horfir yfir eyðilandið
stoltur og hreykinn
af nýjustu nýlendu
áletraða ermabola og
gullhúðaða rúmlampa
ritskoðuð sjálfsstæð
hugsun leiðir blindan
um hillur erlendra vína
og hausa tóma af
gapi Ginnunga
bæjarfiflið nýtur sín
með nokkra tonna rafmagnsstóll

að sprengja fyrir frið
er eins og að ríða
fyrir meydóm