Sólin lét sig hverfa
bak við blásvört ský
þegar gömul kona
með æðaberar hendur
og strengdan kvið
gekk út í vorið
með agnarlitla kistu
og dauðann sér við hlið.