Þó ég gráti allar nætur
og hugsi um hvernig þetta var
þá er mér alltaf hugsað til þín
hvernig þú gerðir lífið mitt skemmtilegra
hvernig þú komst mér til að brosa
og mest
hvernig þú elskaðir mig.
Þú hefur alltaf verið besti vinur minn
þó núna sértu kominn til himna
þá mun ég ætíð minnast þín
ég mun kaupa handa þér gjafir þegar þú átt afmæli
og ég mun hugsa til þín á jólunum.
Ég veit að þú ert hérna hjá mér
þú situr þarna á rúminu og fylgist með mér
mér er enn annt um þig
og ég vil að þú fylgist með mér að eilífu
og verðir alltaf með mér,
fari aldrei frá mér
og elskir mig.