Minntu mig á
að mynnast við þig
að muna muninn
á mínum munni
og þínum.

Að strjúka ei
er þú strýkur mér
því strokur þínar
eru mínar.