Hvar ertu, hvert fórstu, hvers vegna?
Ég leita þín enn út um allt.
Hvers vegna, hvar ertu, hvert fórstu?
Án þín er allt dimmt og kalt.

Þau segja´ð þú komir ei aftur,
hafir farið á fjarlægan stað
og að nú líði þér mun betur
og að allt sé eins og það var.

En hvenær fæ ég að hitt þig,
það væri svo ósköp gaman.
Hvenær kemurðu að sækja mig
svo alltaf verðum við saman.

Hvar ertu, hvert fórstu, hvers vegna?
Ég leita þín enn út um allt.
Hvers vegna, hvar ertu, hvert fórstu?
Án þín er allt dimmt og kalt.