Á flugi um himinn geiminn,
til stjarnanna sem brosa til okkar,
er skyggja tekur,
til tunglsins þar sem mánadísin situr,
og fléttar hár sitt,
til regnbogans sem minnir okkur
á kærleikann,
til norðurljósanna sem bjóða uppí dans
uppá klædd í sparifötin,
til sólarinnar þar sem alheimshjartað slær
á hverjum nýjum degi.