Ungi myndarlegi pilturinn
hefur rétt í þessu uppgötvað
að hann elskar í raun
ungu myndarlegu stúlkuna

Eftir mikinn miskilning
og margar fléttur
hefur hann nú áttað sig
en hann er að missa hana frá sér

Því hún er nefnilega
á förum akkúrat
á þessari stundu
og stödd á flugvellinum

Hann flýtir sér
eins og hann getur
hraðar sér á flugvöllinn
hleypur í gegnum mannþröngina

Sér hana þar sem hún stendur
við biðröðina sem liggur
að innrituninni í flugvélina
hún er næst

Hann hleypur að henni
nær að stöðva hana
tjáir henni allt
sem hvílir á huga hans

Hann elskar hana
hann áttaði sig á því
hann veit hvað hann er að fara
að missa úr höndunum

Hann horfir á hana
með eftirvæntingu
og spenningi
meðan hún meltir orð hans

Með litlu tári
og nettu brosi með
gefur hún til kynna
að hún elski hann líka

Þau kyssast
allir klappa
tár á hvörmum
amerískt

Hann teymir hana með sér
þau yfirgefa flugvöllinn
á hvítum hesti
í átt að sólsetrinu

Á þessu augnabliki
endar myndin
Á þessu augnabliki
byrjar lífið