Þegar augun þín stara á mig,
biðjandi,
brostin,
er eins og börnin í Írak
bendi á mig.

Og þegar ég bæti úr,
allt batnar,
birtir yfir,
er eins og bænir mínar
myndhverfist.
Í meinum var hún fegurst allra systra minna. Rebekka 2002.