Undan þeim sem of mikið vita
hlaupandi
yfir þá sem þig ekki vantar
dettandi

Hjálpina drepandi

Segðu mér; hvað ert þú
flýjandi?
Hvað helduru sé eftir þér
bíðandi:

Friðurinn brosandi?