Manstu eftir
björtu sumarnóttinni
þegar við sofnuðum sæl
og næturblærinn fangaði
andardrátt okkar
um opinn gluggann
og bar á örmum sínum
inn í bjarta nóttina.
Manstu þegar ilmur blómanna
læddist inn til okkar
og bar okkur ljúfa drauma
þar sem við sváfum vært
í fangi ástarinnar.


Meðan við sofum í fangi ástarinnar
kemur næturblærinn og hlustar
við opinn gluggann
á friðsælan andardrátt okkar,
og ber hann með sér
inn í bjarta sumarnóttina.
Úr döggvotum garðinum
læðast blómálfar að rúmi okkar
og flytja rósailm inn í drauma okka