Fannhvítur himinn heilsar mér.
Hann mun veifa, brosa og kalla
er mínir sorgar synir falla.
Sannlega tekur hann við þér.

Eldrauðir logar leika um mig
og lýsa hug minn, sál og hjarta,
mig bera að ljósi hinu bjarta.
Bærilegt væri, hefði ég þig.