Málum bæinn rauðann
sandinn svartann
með olíunni hans Sáms frænda
eða tilvonandi.
Tilvonandi munu svo veggirnir hrynja
og svartar krumlur Saddams brenna í helvíti
og umvefja oss olíusvartur faðmur frelsarans með byssukjaftinn við nef mér.
svo frá himni
gefur oss daglegt brauð með mcdonaldsborgara í
sem vér skolum niður með stoltinu.
Faðir vor, þú sem ert á himni með vopn og lífsins verjur
helgist þín viðskipti
með eign okkar og líf
frelsa oss með góðu eða illu
svo hagsmuni þína skuli gæta
því þitt er ríkið, olían og dow jones
að eilífu
Ameríka.



Ég er bara í fýlu. Ég er efins um að Saddam sé enn á lífi,,, djöfull er það nú gott. Hafiði hugsað um eitt?? Að leyfa USA OG UK að fara þarna inn í Írak er svipað og að senda úlfinn til að reka refinn úr hænsnakofanum. Frelsi og lýðræði, mannréttindi og matur,,, undir niðri stendur eitt eftir í fyrirætlunum Bandaríkjamanna, olía.
—–