Áfram Ísland! Ritstíflan hefur ekki verið skammvinn hjá mér að þessu sinni en þó náði ég að bögla nokkrar setningar niður í eitt ljóð:

Foringi vor,
í blindni fylgjum við þér
eins og sauðir fylgja fjárhirði sínum.
Davíð minn,
leyf mér að vera í hjörð þinni
opnaðu augu mín og vísaðu mér að sannleikanum.
Frelsaðu mig,
eins og margan manninn
og leið mig á rétta braut.

Áfram Ísland!