Í dag

Hæ, þetta ljóð er til þín!
Ekki lesa það fyrr en ég kem aftur,
því það býr svo mikill kraftur,
í svo litlu ljóði.

Þetta ljóð fjallar um sorg og gleði,
tár og bros.
Eða kanski ekki!
Byrjum aftur.

Dagurinn á morgunn verður fagur,
eins og hver annar dagur.
En dagurinn í dag er sælastur,
því þetta ljóð samdi ég,
aðeins handa þér.