Hún læðir sér inn
lævís og ljót,
og leitar að fórnarlambi.

Hún hýsil sér velur
hann eða hana,
og hæfir af heift og illsku.

Hún veikir og lamar
vonir og varnir,
og veiðir að nóttu sem degi.

Hún dregur menn niður,
dvelur í draumum,
og dularfull hverfur til baka.
Í meinum var hún fegurst allra systra minna. Rebekka 2002.