Þetta ljóð er til þín
þú ert fegursta blómið
í Grasagarðinum
þú ert litrík og ilmar af lífi
og teygir þig upp
til sólarinnar
sem lifandi minnismerki
um sköpunargáfu hennar
þetta ljóð er til þín

Þetta ljóð er til þín
þú ert kapallinn í mínu lífi
sem gengur alltaf upp
þú ert púsluspilið
sem raðast upp
af sjálfu sér
þú ert ljósmyndin sem fangar
hið fullkomna augnablik
þetta ljóð er til þín

Þetta ljóð er til þín
þú ert súrefnið mitt
öll mín skynfæri
fagna þér
þú ert rjómaís
á heitum sumardegi
þú ert nótan
sem fullkomnar sérhvert lag
þetta ljóð er til þín

Þetta ljóð er til þín
en þú veist ekki af því…