Að lifa af lýsi á tungubroddi er að eiga við krónískt klofbragð.
Stígið með myntukeim bragðbættrar dagrenningar,
vísifingur rýfur meydóm morgunsins, hælkrókur í gluggatjald
leiðin fyrir stúrið auga hefur verið rudd.
Winston sendir reykboð til þess sem eftir lifir dagsins –
afboðar sig vegna veikinda.
Dagur er vítisengill – bandíti með skítugt hár og illa fyrirhyggju:
hí, hí, hí á þig, nú væri betra að vanda sig.