Ég vildi að ég kæmist
burt frá þessum heimi.
Aleinn gæti lifað
lengst uppi í geimi.

Ekkert gæti truflað mig,
engin skjöl og engir skattar,
engin streita, ekkert stress,
engir ljótir kúluhattar.

Lífið yrði fullkomið
í þessum fagra huga,
en ég læt ei hinn ekta heim
drauma mína buga.

Skildi vera einhver staður
sem hefur allt svona flott,
þá mun ég kannski ferðast þangað
og hafa það svo ósköp gott.
Ef þú átt eitthvað vantalað við mig….slepptu því að segja það.