Ef þú hefur ekkert betra að gera
einn góðan veðurdag
leiktu þér þá með líf mitt

Ef þú hefur ekkert betra að gera
þegar þokan leggst
taktu þá líf mitt og púslaðu því

Ef þú hefur ekkert betra að gera
þegar rignir úti
taktu þér þá smá tíma
til að leita af púslinu sem þig vantaði
þarna um daginn