Það kom eins og elding
og það myrkvaði snögglega
Ljósið beindist að mér
en ég vissi að þú værir nálægt
Svo rankaði ég við mér
og þú varst farinn

Morguninn eftir varstu fundinn
aleinn
í fjörunni
Allir söknuðu þín
allir gera það enn
hve mikill var sársaukinn
minn eða þinn?
Hve mikið þarf ég að þjást
til að skilja sársaukann þinn?

Munum við hittast aftur?