ef þú værir lag
þá myndi ég semja við þig ljóð
labba upp á Evrestfjall
þenja barkann
og syngja þig til síðustu nótu
halda svo niðri í mér andanum
þar til bergmálið heyrðist ekki lengur
þá myndi ég renna mér niður
hratthratthratt
og grípa tónana á leiðinni
anda þeim að mér
svo ég gæti prílað upp aftur
og sungið þig endalaust