-Getur verið
að þyngdarkraftur frá þér
verki á mig?
Og að vegna lögmálsins
láti tregðan mig hringsóla
í staðin fyrir að fara beint til þín?

-Æi, ég veit það ekki.
Hvernig á ég að vita svarið
við þér, þegar þú veist það ekki einu sinni sjálf?