Dagur bjartur
laufblöð féllu
og hún grét…

Dagur bjartur
snjórinn þakti
og hún grét…

Dagur dimmur
snjórinn rauður
og hún grét…

Nóttin kólnar
rauður hverfur
og hún grét…

Kaldur máni
hvítur, rauður
og hún grét…

Tárin falla
pabbi meiddur
og hún grét…

Bjarmin sleikir
pabbi hvítur
og hún grét…

Pabbi dauður
runni rauður
og hún grét…

Gulur máni
kaldur vindur
og hún fraus…