Ég er lítill angi af óþekktu kyni
og óþekktri tegund
og ég kannast svo vel við mig hérna.

Hvar hef ég upplifað þessa reynslu áður?

Var það á himnum?
Eða jörð?

Eða var það þegar ég sat í kuldagalla
á bakvið skemmtistaðinn
og drakk brennivín í kók
og reykti Lucky Strike
(frá mömmu).

Og við héldumst í hendur
og köstuðum fram fyrripörtum
og köstuðum upp
á það
hvort okkar skyldi eiga síðasta stubbinn
í alheiminum.

Var það þá?

Eða seinna,
þegar ég var dáin
og hafði grafið mig lifandi
í steypu og lambakjöt.
Í meinum var hún fegurst allra systra minna. Rebekka 2002.